06júlí

Endurkoma, eða hvað ?

Margt hefur breyst síðan ég kom seinast hingað. Ég hreinlega veit ekki hvort það sé nægur tími til að skrifa það sem hefur gerst í lífi mínu síðan ég bloggaði seinast. Ég segi nú alveg eins og er, ég var löngu búin að gleyma þessu bloggi þar til Hilmar minnti mig á það. Ég sagðist ætla að eyða því en ég er ekki viss, svona eftir að hafa skoðað bloggið þá langar mig til þess að halda því áfram, svona inn á milli þegar ég hef tíma.
Ég get ekki sagt að mig langi til þess að fólk lesi bloggið, ekkert frekar allavega. Ég á annað blog, sem er á ensku en það væri líka fínt að skrifa einstaka sinnum niður það sem ég hugsa dags daglega, sem er yfirleitt á íslensku.
06. júlí 2011 klukkan 18:52
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
Almennt
Engin athugasemd
06apríl

Páskafrí.

Gelgjublogg eru kúl !

At The Moment. <3

Tónlistin - New Found Glory
Lesturinn - Harry Potter bækurnar
Myndin - Role Models
Skapið - Fínt bara


Textabrot. <3

You could be my unintended
Choice to live my life extended
You could be the one I'll always love
You could be the one who listens to my deepest inquisitions
You could be the one I'll always love

Unintended - Muse

Bloggið. <3

Jájá, ég blogga bara í fríum, ég veit. En þá hef ég lítið sem ekkert að gera og þá man ég eftir því að ég eigi síðu. Ég til dæmis bakaði 2 kókóskökur í fyrradag, Aroni til mikillar ánægju. Svo í dag hjálpaði ég elsku mömmu að elda það sem ég kalla pítzettur. Og núna sit ég bara inní stofu að horfa á Twilight með mömmu og munch-a páskaeggið mitt sem ég opnaði aðeins of snemma.

Ferming í næstu viku, svo mikið vesen drama sem sökkar. Litli bróðir er að verða stór. Og hrokafullur. Hvað er málið með það að þegar krakkar eru að fara fremast þá bara BAMM instant hroki og leiðindi. Ekkert nema bögg. Það er gert aaaaallt of mikið mál úr því þegar krakkar fermast. Svo mikill tími og peningur fyrir svona hálftíma dót.

Eeeen, fuck hvað mig langar á Akureyri aftur. Nenni ekki að vera hér yfir allt páskafríið en ég neyðist víst til þess. Og byrja mögulega að mæta á júdó. Þarf eiginlega að fara gera það.

Ég nenni eigi að blogga lengur.

Mímí. <3

Myndir. <3

Photobucket
Þórgunnur tók. <3
Photobucket
<3
Photobucket
Hann er svo of sætur. <3Photobucket
Svo satt. <3
.ily.
06. apríl 2009 klukkan 23:50
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
Engin athugasemd
17desember

Bitter.

Tónlistin - Twilight soundtrack. <3
Lesturinn - Breaking Dawn. <3
Myndin - Twilight. <3
Skapið
- Veit ekki ?

Textabrot. <3

Minutes
Turn into hours
And hours
Bleed into days
It's been years now
Since the trouble
You left me
And i wanna say

I'm not bitter
But i've seen
Better days
I'm not bitter
Is it
The better man
That always
Walks away

Bitter - Teddy Geiger


Bloggið. <3

Langaði bara að koma þessu á framfæri. Ég er lifandi og mér dauðleiðist.
Ég er komin heim á Breiðdalsvík í jólafrí og shit hvað þessi staður er dauðari en mig minnti. Mig langar svo mikið aftur á Ak, sakna þess að vera þar. Enn einusinni er ég búin að snúa sólahringnum við eins og alltaf, ég þarf virkilega að fara hætta því en svona er það að finnast svona gaman í tölvunni. Að gera ekkert já.

Og senn fer að líða að jólin. Gaman gaman. Eða hitt þó heldur. Mér finnst vera of mikið gert í kringum þessi jól, of mikið hugsað útí efnislegu hlutina. Ég sakna jólin úti í Nýja Sjálandi. Lítið stress, bara allir að hanga saman og hafa gaman á stuttbuxunum. Hérna er það: maturinn - flottustu og stærstu pakkarnir - allir fínir - allt fullkomið - allir eiga að vera ánægðir og svo mikið meira. Ég meina, þú sérð það bara að þetta gengur stundum of langt. Ég er sátt við að fá skópar frá mömmu og pabba í jólagjöf og það sem ég bað um í jólagjöf var allt eitthvað sem ég þarf, ekki eitthvað sem ég vil og eina ástæðan fyrir því að ég gerði þennan lista var afþví að ég vissi að mér yrði spurt hvað ég myndi vilja.

Annars hef ég voða fátt að segja, fáar pælingar í gangi svosem, langaði bara að gera svona ekta stelpu blogg einusinni. Voða gaman eitthvað.

Ætla samt að lengja bloggið með myndum og nokkrum uppáhalds quote-um.

Merenia Kristín Jólahatari <3



Myndir. <3

Photobucket

Ég kann að leika mér í photoshop ^_^

twilight Pictures, Images and Photos
Sætast <3

Edward Cullen Pictures, Images and Photos
Hann er nýji draumaprinsinn <3

Quotes. <3

So, did you stab Edward Cullen with a pencil or what? I've never seen him act like that. - Mike Newton.

Stupid, shiny Volvo owner. - Bella Swan

I decided as long as I was going to hell, I might as well do it thoroughly. - Edward Cullen

What if I'm not a superhero? What if I'm the bad guy? - Edward Cullen

Honestly - I've seen corpses with better color. I was concerned that I might have to avenge your murder. - Edward Cullen

Stupid, unreliable vampire. - Bella Swan

I hear voices in my mind and you're worried that you're the freak. - Edward Cullen

About three things I was absolutely positive. First, Edward was a vampire. Second, there was part of him - and I didn't know how potent that part might be - that thirsted for my blood. And third, I was unconditionally and irrevocably in love with him. - Bella Swan

.ily.
17. desember 2008 klukkan 05:00
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
4 athugasemdir
14júlí

Kvart !

Jæja þá blogga ég loksins utan frá. Ekki að ég nenni því en mig langar að kvarta.

Ég er veik, ég er allsvakalega emotinal útaf því ég er veik, mig langar heim því ég sakna alla vini mína, ég er með hausverk. ég sakna allra .. segi þetta aftur því það er alveg rosalegt sakn .. og stuff.

Ég nenni ekki meiru, mig langaði bara að koma þessu á framfæri

.Ninja.Princess.<3

.ily,.
14. júlí 2008 klukkan 09:58
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
4 athugasemdir
24maí

Út.

Vá ég er svo töff!
 
Photobucket

Jæja nú styttist óðum í útanlands ferðina mína! Tilhlökkunin rosaleg og ég get ekki beðið! Ætli maður verði nú ekki að fara gera sig tilbúna þó maður nú nenni því ekki enda löt og þekkt fyrir það. Jæja ferðin.

  • Legg af stað héðan (Breiðdalsvík) 11. júní líklegast og fer norðurleiðina til að geta farið til læknis.
  • Læknis á Ak. og svo bara haldið áfram
  • Rvk.
  • Verðum ábyggilega komin seint þannig sooooofa
  • 12. júní KANNSKI til læknis annars er dagurinn fullbókaður og það mun líklegast ekki vera hægt að hitta mig því þetta er allt planað ef ég fer ekki til læknis. Svona svo þið vitið það.
  • 13. júni flýg ég út!! YAY
  • Og svo bara brasað úti, hitt familíuna og svona.
  • Svo verð ég komin heim um 15. ágúst ef ég man rétt og þá bara fer ég að byrja í skólanum og svona.
3 mánuði úti! Vá hvað mig hlakkar til. Ég ætla að reyna blogga eins og ég get en maður veit aldrei. Ætla amk. að láta vita að ég sé enþá lifandi. Ég mun sakna allra því ég verð svo lengi og missi af afmælum (ooof marga) og bíladaga, versló og margt annað sem var planað. Næsta ár guys, næsta ár. Og ég skal reyna að koma með gjöf handa fólki, en ég lofa engu! Það eru nú bara 20 kg hámarksþyngd og ég mun fara út næstum bara með fötin á bakinu til að geta keypt sem mest!

En mér er illt í maganum og ætla að reyna leggja mig smá

Nátthrafninn kveður í bili

EDIT!!: Man U er best, við pwnun alla aðra liði! GOGO MAN U!!!

.Merenia.
.ily.
24. maí 2008 klukkan 06:42
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
5 athugasemdir
16maí

Sofa.

Enn og aftur virðist ég ekki getað sofið á réttum tíma. Blagh, það sýgur. Óspennandi blogg já. Yay. Mynd af mér síðan langt síðan. Whee.

Photobucket

Guð hvað ég var ung. Þetta var í hvað, níunda bekk. Byrjun níunda bekks. Vá hvað það virðist vera langt síðan. Það var þegar ég og Emilía kynntumst.

Guð hvað ég þoli ekki hvernig lífið verður þegar maður eldist. Bestu vinir fjarlægast manni, ekkert verður eins eftir að maður fer í menntaskóla. Maður fær bragð af raunveruleikanum. Maður kynnist nýju fólki og það er eins og gömlu vinirnir detta niður um rifurnar, gleymast óvart. Ég vildi að það væri ekki þannig. Ég sakna alla. Það er alveg skelfilega leiðinlegt, sérstæklega eins og manni finnst að það er ekkert hægt að gera í því. Maður veit ekkert hvernig maður á að byrja að kynnast fólkinu uppá nýtt. Meira get ég ekki sagt.

Ak á sunnudaginn. Get ekki beðið!

Blogg ahbú.

Kommenta takk <3 :*

.MereniaKristín.
.ily.
16. maí 2008 klukkan 03:21
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
4 athugasemdir
04maí

(You Want To) Make A Memory

Minningar.

Minningar um fólk. Minningar um atburði. Minningar um að vera ungur og áhyggjulaus. Minningar um tilfinningar. Minningar um allt.

Allir eiga sína minninga. Góða og slæma. Sumt virðist vera svo æðislega gott en minningin verður alltaf daufari og daufari. Sumt vill maður bara gleyma en þessar minningar verða þarna alltaf, verða aldrei daufari, ásækja mann.

Stundum er allt svo gott, einstök augnablik sem allt gleymist, bara þú og þessir heitt elskuðu. Hvort sem það eru bestu vinir, nánir ættingjar eða bara einhver sem lætur þig líða einsog þú sért eina manneksjan sem skiptir máli. Fólk sem gerir þig ánægðan. Þau móment gleymast aldrei. Það á að njóta þessa sjaldgæfu en verðmætu augnablik til fulls. Ekki sleppa takinu. Stundum eru þessi augnablik ekkert merkileg. Kannski bara samtal, samtal við einhvern sérstækan.

Sjálf man ég bara eftir eitt þannig samtal akkurat núna og bara við að hugsa um það brosi ég en verð smá sorgmædd á sama tíma því manneskjan er ekki hjá mér. Þetta var alveg rosalega innihaldslaust samtal, töluðum um ekkert en samt sem áður skiptir þetta samtal máli. Við brostum, hlógum og skemmtum okkur. Gleymdum okkur í að spjalla um lífið og tilveruna. Þetta samtal skiptir mig máli, seinasta samtalið sem ég átti við hann áður en hann hvarf úr lífi mínu. Ég vissi það ekki þá, en þetta samtal var mikilvægt. Ég man voða lítið um hvað við töluðum satt best að segja en tilfinningin var og er ólýsanleg. Ég brosti út að eyrum afganginn af deginum, ég var svo ánægð.


Önnur lítil augnablik sem skipta máli.

Hafdís. Þegar hann kom. Þetta skiptir svo rosa miklu máli fyrir mig, að hann taki mig í sátt, að honum líkar vel við mig. Þetta var alveg ógleymanlegt kvöld.

Illugi. Ég, þú og hjólabretti. Need i say more?

Danni. Að rúnta ein með þér, að spjalla um allt og ekkert er svo æðislegt, sérstæklega með þér.

Silla. Vá hvar á ég að byrja? Svampur Sveinsson er okkar. Og allt þetta heimskulega sem við höfum gert. Snjóstólarnir, hella okkur blindfulla og gera hluti sem við sjáum svo fuck mikið eftir að hafa gert. Að kúra með þér.

Ásta. Þú ert Ástaástinmín og það breytist aldrei. Þú ert sýrutrippsvinkona mín! Ógleymanlegt og snilldar nótt.

Lony. Íslensku tímarnir, að hlusta ekki og tala um það sama aftur og aftur og aftur. Og svo litlu, litríku post it miðana.

Doddi. Að labba upp í Stax því 10/11 var of stutt í burtu, Ben&Jerrys ís.

Alex. Þú ert svo straight ástin mín. Svo svakalega straight.

Grímur. Skoooooo, fólk er eins og það er nema það sé öðruvísi en þá er það samt einsog það er. Ekki satt Hvolpur? Farðu svo að fá þér bláan spandex galla.

Dísa. Stæ. Ég meina vá hún hatar mig.

Hrefna. Ég að syngja jólalög í júni og þú að hata mig. Að hlusta á vinyl plöturnar.

Linda. Hestbak með þér. Alltaf gaman

Silvía. The usual, mig langar í þannig núna.

Eiríkur. Þú að kenna mér vals, óborganlegt failure.

Steinþór. Silvía að smakka smokkinn, það var eplabragð.

Ólöf. Að vekja fólk með að henda bangsa í þau.

Komið gott held ég. Ég gæti haldið áfram en ég ætla að fara sofa, hausverkur aftur. Sakna ykkur öll <3 ;*

.Merenia.

.ily.
04. maí 2008 klukkan 03:00
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
8 athugasemdir
02maí

MyBloodyJesusExplorerOnFire

Random facts ftw.

- Hætt í skóla -
- Enþá veik síðan í jan -
- Fer út í júni -
- Sakna Akureyrar -
- Og alla sem ég þekki þar -
- Snjór sökkar -
- Útlendingar eru heimskir þegar kemur að snjó -
- Mamma mín er æði -
- Mig langar í skjaldböku -


Zomg, ég er að blogga. Eða eitthvað í áttina. Held ég. Kannski ekki. Hver veit.

Ég ætla að spurja random fólk á msn 'heeey, ef 1+1 væri 3 hvað væri þá 1+1+1?'

Silla: 3 ...
Viggi: 4 1/2
Silvía: Líka 3. eða 4
Sölvi: 4,5 ?
Svana: ööö. 4 1/2
Benni: LOOK BEHIND YOU *hverfur* ég neita að svara
Brynjar: Öhhh það væri ... Öllum er fokking sama
Ásthildur: 5 =D O.o eða 4 xD
Auður: Huhh? 4.5? :P :D
Birna: 3
Óli: 4.5
Dusi: 5
Baldur: WTF? Hmm. Ég myndi segja 6
Alex: 4 :D :P
Danni: 4.5
Lony: Hmm ég held 20
Kalli: 4.5
ef að 1+1 = 3, þá verðum við að gefa okkur það að 1 = 1.5
sem gerir það að verkum að 1+1+1 = 4.5
*munch*
þá erum við líka að gefa okkur það að 1 sé óþekkt stærð

Skemmtileg svör, ég hef ekki hugmynd um hvað það ætti að vera. According to popular belief þá er það 4.5. Þá ætla ég að segja 4.5 ^.^ ! Og Kalli fær verðlaunin fyrir að vera með gáfulegasta svarið. Til hamingju ^.^

Þetta er kjaftæðisblogg, ég veit það. Engar pælingar. Ekkert. Heimska drasl. Ég þarf að fara vaska upp.

*
**
***
****
*****
****
***
**
*

Vitiði hvað? Fóturinn minn var sofandi þegar ég stóð upp. Ég datt niður.

House: In case I need them, where will you be keeping my balls?

Híhíhí hann er snillingur!

Ooooog ég var að komast að því að ég er líka frá Indlandi, Frakklandi, Spáni. Og líka frá Skotlandi. Blendingur much xD

Eeeeeeen ég ætla að fara sofa útaf því að ég er með hausverk.

[.Dj.Bunny.].saknar.[.Dj.Raven]
I loves Silla.
Danni er æðibitinn minn.
UniTard er mikið saknaður.
Ásta bestastaástinmín.
Lony er hardcore draslið mitt sem ég elska.
Ólöf þarf ég að fara hitta!
Hrefna er skítur og úti í Perú. Drullastu heim!

.Merenia.
.ily.
02. maí 2008 klukkan 20:40
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
12 athugasemdir
12mars

Okay, nú ætla ég að blogga!

Vá, ég er búin að ætla mér að blogga svo lengi. En eins og allir vita sem þekkja mig tekst mér alltaf að fara gera eitthvað allt allt allt annað en það sem ég ætla mér að gera. Svaka dugleg alltaf.

Fkn mikið búið að gerast síðan seinast. Ég er enþá veik, með fkn einkyrningssótt. Ekkert þol, nákvæmlega bara ekki neitt. Alltaf gaman að þurfa labba útum allt þá. Awesome alveg. Thank god fyrir strætó segi ég nú bara. Mín er nú líka bara að falla í skólann útaf þessu helvíti, vil ekki vil ekki vil ekki!

Ég hættí málmsmíði í fyrradag, þetta var bara of mikið álag fyrir mig.

Æji fokkit, ég bæti við seinna! Ég nenni þessu ekki akkurat núna.

.Merenia.
.ily.
12. mars 2008 klukkan 17:25
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
2 athugasemdir
25janúar

Veik.

Well einsog sumir vita þá er ég veik. SCORE! Er ekki búin að mæta í skóla síðan 16. janúar og svona stuff. Mér líður ömurlega, ég hata veikindi! Ég get ekki borðað almennilega og ég er alltaf máttlaus og skemmtilegt. Ætlaði bara að láta vita að ég er lifandi-ish. Ég hef engar pælingar eða neitt. Nenni ekki neinu. Þannig það verður ekki langt blogg að þessu sinni.

Ég kveð að sinni

.Merenia.

.ily.
25. janúar 2008 klukkan 14:24
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
  • Um mig: Ég er 18 ára stelpusnáta að austan, blogga þegar mér leiðist og þegar ég nenni. Kommenta&kvitta takk. <3

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
  • Um mig: Ég er 18 ára stelpusnáta að austan, blogga þegar mér leiðist og þegar ég nenni. Kommenta&kvitta takk. <3

<3

Make a wish and place it in your heart. Anything you want, everything you want. Good. Now believe it can come true.