Út.
Vá ég er svo töff!
Jæja nú styttist óðum í útanlands ferðina mína! Tilhlökkunin rosaleg og ég get ekki beðið! Ætli maður verði nú ekki að fara gera sig tilbúna þó maður nú nenni því ekki enda löt og þekkt fyrir það. Jæja ferðin.
- Legg af stað héðan (Breiðdalsvík) 11. júní líklegast og fer norðurleiðina til að geta farið til læknis.
- Læknis á Ak. og svo bara haldið áfram
- Rvk.
- Verðum ábyggilega komin seint þannig sooooofa
- 12. júní KANNSKI til læknis annars er dagurinn fullbókaður og það mun líklegast ekki vera hægt að hitta mig því þetta er allt planað ef ég fer ekki til læknis. Svona svo þið vitið það.
- 13. júni flýg ég út!! YAY
- Og svo bara brasað úti, hitt familíuna og svona.
- Svo verð ég komin heim um 15. ágúst ef ég man rétt og þá bara fer ég að byrja í skólanum og svona.
3 mánuði úti! Vá hvað mig hlakkar til. Ég ætla að reyna blogga eins og ég get en maður veit aldrei. Ætla amk. að láta vita að ég sé enþá lifandi. Ég mun sakna allra því ég verð svo lengi og missi af afmælum (ooof marga) og bíladaga, versló og margt annað sem var planað. Næsta ár guys, næsta ár. Og ég skal reyna að koma með gjöf handa fólki, en ég lofa engu! Það eru nú bara 20 kg hámarksþyngd og ég mun fara út næstum bara með fötin á bakinu til að geta keypt sem mest!
En mér er illt í maganum og ætla að reyna leggja mig smá
Nátthrafninn kveður í bili
EDIT!!: Man U er best, við pwnun alla aðra liði! GOGO MAN U!!!
.Merenia.
.ily.
24. maí 2008 klukkan 06:42
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir


Þó ég sé nú ekkert að hitta þig hvort eð er :C
Samt, sakn á þig<3