06júlí
Endurkoma, eða hvað ?
Margt hefur breyst síðan ég kom seinast hingað. Ég hreinlega veit ekki hvort það sé nægur tími til að skrifa það sem hefur gerst í lífi mínu síðan ég bloggaði seinast. Ég segi nú alveg eins og er, ég var löngu búin að gleyma þessu bloggi þar til Hilmar minnti mig á það. Ég sagðist ætla að eyða því en ég er ekki viss, svona eftir að hafa skoðað bloggið þá langar mig til þess að halda því áfram, svona inn á milli þegar ég hef tíma.Ég get ekki sagt að mig langi til þess að fólk lesi bloggið, ekkert frekar allavega. Ég á annað blog, sem er á ensku en það væri líka fínt að skrifa einstaka sinnum niður það sem ég hugsa dags daglega, sem er yfirleitt á íslensku.
